Samtökin '78
@samtokin78
Followers
2K
Following
442
Media
148
Statuses
3K
Félag hinsegin fólks á Íslandi! (Þau/þeim/þeirra) Fræðsla, ráðgjöf, réttindabarátta og félagslíf 🏳️🌈 Viltu styrkja? https://t.co/q5b1MQrRa1
Reykjavik, Iceland
Joined December 2009
Okkur hjá Samtökunum '78 langar að bjóða hinsegin fólki og aðstandendum þess til samverustundar. // These are trying times for the LGBTIA+ community in Iceland, and in fact around the world. Let's get together. https://t.co/AzmLHrccEk
facebook.com
Event in Reykjavík, Iceland by Samtökin '78 on Saturday, September 16 2023 with 539 people interested and 114 people going. 5 posts in the discussion.
8
0
2
Þú ert aldrei ein, einn eða eitt og öll geta sótt sér ráðgjöf, sér að kostnaðarlausu. Allar frekari upplýsingar um ráðgjöfina, ásamt bókunum, má finna á
2
1
10
Ráðgjafar samtakanna eru fagmenntaðir og hafa víðtæka þekkingu á hinsegin málum. Fullur trúnaður ríkir um ráðgjöfina.
1
0
8
Samtökin ’78 bjóða upp á ráðgjöf til hinsegin fólks, aðstandenda hinsegin fólks og fagfólks. Markmiðið er að styðja einstaklinginn, veita aðstoð og vera til staðar.
1
0
9
Það mæðir mikið á hinsegin fólki í augnablikinu, en fordómaaldan sem nú gengur yfir okkur bætist við öráreitið sem flest okkar finna fyrir alla jafna. Þá er mikilvægt að minna sig á að þú ert aldrei ein, einn eða eitt og öll geta sótt sér ráðgjöf, sér að kostnaðarlausu.
5
15
165
Bakslagið hefur verið að raungerast og hefur mikil áhrif á líf hinsegin fólks. Við fögnum þessum hugrökku ungmennum sem hér deila aftur sögu sinni. https://t.co/o5JgCXj0h8
ruv.is
Umræðan um málefni hinsegin fólks hefur einkennst af nokkurri heift síðustu mánuði. Samtökin '78 urðu vör við mikla fjölgun tilkynninga í kringum hinsegin daga. Vinahópur, sem steig fram fyrir ári...
3
2
33
Samtökin skora á yfirvöld að tryggja öryggi fólks á flótta og grunnaðstoð með virku samráði við hjálpar- og mannréttindasamtök. 16/16
0
0
2
Staða fólks á flótta er grafalvarleg. Ný útlendingalöggjöf og fráleitar hugmyndir stjórnvalda um fangabúðir bitna mest á jaðarsettustu og viðkvæmustu hópum flóttafólks: hinsegin fólki, konum og börnum. 15/16
1
0
2
Hver er staðan? 54 hinsegin manneskjur á flótta eru í virkri og lífsnauðsynlegri þjónustu hjá Samtökunum '78. 14/16
1
0
2
Hvorn kostinn myndir þú velja? Hinsegin fólk á flótta stendur því oft frammi fyrir tveimur afarkostum: Sleppa því að koma út úr skápnum og eiga þá minni líkur á vernd eða koma út úr skápnum og taka þar með gríðarlega áhættu á fordómum,ofbeldi og útskúfun frá upprunasamfélagi sínu
1
0
2
Hinsegin fólk á flótta er oft sett í almenn úrræði með fólki frá sama upprunalandi og þau flúðu. Þar verða þau vitni að þeim fordómum sem grassera í upprunalandi þeirra og þar mæta þau fordómum, og því miður hótunum, ef það spyrst út að þau séu hinsegin. 12/16
1
0
2
Það flækir málin enn frekar að oft skortir fólk orð og skilgreiningar til að tjá sig um það að vera til dæmis hommi, orð sem ekki er til í öllum tungumálum. 11/16
1
0
2
Almennt koma túlkar gjarnan úr þeim samfélögum sem hinsegin fólk hefur flúið og eru sorglega mörg dæmi þess að hinsegin fólk á flótta verði fyrir fordómum frá túlkum. Traust túlkaþjónusta er því afar mikilvægur hlekkur í þjónustunni sem Samtökin ‘78 veita. 10/16
1
0
2
Óttinn við að vera opinberlega hinsegin er djúpstæður og á rökum reistur. 9/16
1
0
2
Þau óttast refsingu frá yfirvöldum og/eða samfélaginu sem þau koma frá. Þau hafa því ærna ástæðu fyrir vantrausti sínu gagnvart yfirvöldum almennt og gefa ekkert upp um hinseginleika sinn, eitthvað sem gæti kostað þau lífið í heimalandinu. 8/16
1
0
2
Af hverju er þjónusta Samtakanna '78 mikilvæg? Fæst hinsegin fólk á flótta segir frá hinseginleika sínum í viðtölum við yfirvöld. Þau hafa lært það frá blautu barnsbeini að hinseginleiki þeirra sé óæskilegur og óvelkominn. 7/16
1
0
2
Við veitum þeim aðstoð og öruggt umhverfi til að segja sögu sína og koma henni á framfæri við yfirvöld til að tryggja eins réttláta málsmeðferð og hægt er. 6/16
1
0
2
Hvað gera Samtökin '78? Samtökin ‘78 veita sálrænan stuðning sem felst í því að hjálpa hinsegin fólki á flótta að vinna úr andlegum áföllum, þunglyndi og kvíða. Ásamt því aðstoðum við þau eftir fremsta megni að aðlagast íslensku samfélagi. 5/16
1
0
2